.

*Minnst 4 verða að vera skráðir kl 21 kvöldið fyrir 6 am og 8:30 am tímana þannig að tíminn haldist inni.

*Minnst 4 verða að vera skráðir 3 tímum áður en aðrir tímar byrja, þannig að tíminn haldist inni, annars dettur hann sjálfkrafa út.

*Hvetjum því iðkendur okkar til þess að skrá sig tímanlega

crossfit selfoss

CrossFit Selfoss er ört vaxandi samfélag af fólki úr öllum áttum sem á það sameiginlegt að vilja bæta lífsgæði sín. Ef þú vilt láta slag standa, ekki hika við að slást í hópinn því okkur finnst fátt skemmtilegra en að taka á móti nýju fólki og kynna það fyrir góðum æfingaranda og frábærum félagskap.

Crossfit Selfoss var opnað haustið 2016. Stöðin er 1000 fm fullbúin tækjum, stórum Crossfit sal á miðhæð, sal fyrir hópatíma á efstu hæð og líkamsræktarsal á neðstu hæð. Á neðstu hæð eru einnig búningsklefar, sauna og ísbað.

Stöðin er opið allan sólarhringinn alla daga ársins og eru korthafar með lykla kort sem gerir þeim kleift að mæta þegar þeim hentar

Opnunartími afgreiðslu er alla virka daga á milli 16.00 og 19.00